Tvær leiðir opnar í Landmannalaugar

Hálendiskort Vegagerðarinnar.
Hálendiskort Vegagerðarinnar. Mynd/Vegagerðin

Búið er að opna Landmannaleið/Dómadalsleið á vegi F225. Þeir sem keyra inn í Landmannalaugar geta því nú farið hring þar sem ekki þarf lengur að keyra veg 208 fram og til baka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Vegur F208 er aftur á móti ennþá lokaður á milli Landmannalauga og Eldgjár. 

Í tilkynningunni kemur einnig fram að verið sé að vinna í veginum um Kaldadal og ætti hann að opnast í næstu viku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert