Hneig niður við Gullfoss

Við Gullfoss. Mynd úr safni.
Við Gullfoss. Mynd úr safni. mbl.is/RAX

Kona hneig niður við Gullfoss rétt fyrir klukkan fimm í dag. Sjónarvottar segja að um eldri konu, erlendan ferðamann, sé að ræða. Lögregla og sjúkralið eru á leið á staðinn og þyrla Landhelgisgæslunnar er komin í loftið.

Ekki er vitað um líðan konunnar, en sjónarvottar segja að fólk á staðnum hafi verið að hnoða í hana lífi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert