Götumatarmarkaðurinn KRÁS var opnaður á ný í dag í Fógetagarðinum eftir að hafa legið í vetrardvala. Mikil stemning ríkti á svæðinu en þar gat fólk keypt sér rétti frá tólf þekktum veitingahúsum í Reykjavík í „götumatarútgáfu“.
Margt var um manninn í góða veðrinu og lifandi tónlist var á staðnum. Opið verður á markaðnum alla laugardaga í júlí og ágúst milli kl. 13.00-18.00.
Sjá einnig: Götumatur undir berum himni