Ein mesta ferðahelgi sumarsins er gengin í garð og má því gera ráð fyrir því að margir leggi land undir fót í góða veðrinu. Umferð hefur aukist jafnt og þétt út úr bænum frá því í morgun, og samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vesturlandi í Borgarnesi er stríður straumur ferðamanna í gegnum bæinn.
Umferðin um Vesturlandsveg sem liggur um Kjalarnesið hefur nú aukist mikið frá því í morgun. Um klukkan 12 óku 120 bílar um veginn á hverjum 10 mínútum og höfðu þrjú þúsund keyrt hann frá miðnætti. Um Suðurlandsveg sem liggur framhjá Sandskeiði óku 137 bílar og 3.097 hafa keyrt þar frá miðnætti.
Umferð var tekin að aukast í gær og var þung umferð við Hvalfjarðargöngin.
Vegagerðin hefur á heimasíðu vakið athygli á því að vegna framkvæmda á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ geti orðið smávægilegar umferðartafir og hefur hámarkshraðinn verið lækkaður í 50 km/klst um svæði á milli Þverholts og Langatanga. Þá er einnig unnið að framkvæmdum á Hellisheiðinni fyrir ofan Hamragilsveg. Á kafla hefur því hámarkshraðinn verið lækkaður niður í 50 km/klst. og gæti það tafið umferðina frekar.
Góð veðurspá er um landið en víða má búast við að hiti fari í 20°C. Gera má því ráð fyrir því að umferð út úr bænum muni aukast enn frekar þar sem fólk muni nýta helgina í ferðalög. Þá er nóg um hátíðarhöld víða um land en lesa má um helstu viðburði hér.
Frétt mbl.is: Umferðin tekin að aukast
Frétt mbl.is: Þung umferð við Hvalfjarðargöng