Tilkynnt um reyk á 7. hæð

Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um reyk á 7. hæð í húsi í Hólahverfi í Breiðholti í nótt. Mikill viðbúnaður var vegna þessa en í ljós kom að um minniháttar atvik var að ræða. 

Mikið hefur verið um sjúkraflutninga undanfarna sólarhringa og segir slökkviliðið að erillinn um helgina hafi verið eins og á virkum degi, en að jafnaði er meira um að vera í sjúkraflutningum á virkum dögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert