Umferð að þyngjast við Blönduós

Suðurlandsvegur á föstudaginn. Búast má við þungri umferð í átt …
Suðurlandsvegur á föstudaginn. Búast má við þungri umferð í átt að höfuðborgarsvæðinu seinnipartinn í dag og fyrri part kvölds. mbl.is/Styrmir Kári

Búast má við að umferð fari að þyngjast allverulega við Blönduós innan skamms. Lögreglan á Blönduósi segir föstudagsumferðina gegnum bæinn hafa verið mjög þunga, og búast megi við að fólk haldi aftur heim á leið fljótlega upp úr hádegi í dag.

Búast má við að umferðin verði nokkuð þung þangað til um kvöldmatarleytið. Allra óþolinmóðustu ökumönnum er því bent á að setjast frekar út í sólina, borða kvöldmatinn snemma í bústaðnum og leggja í hann þegar umferð er aftur tekin að léttast.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert