Alvarlegt umferðarslys í Hafnarfirði

mbl.is/Hjörtur

Um klukkan hálftvö í dag varð alvarlegt umferðarslys í Hafnarfirði, á gatnamótum Reykjanesbrautar og Strandgötu. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var einn fluttur á sjúkrahús en ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan hans.

Stuttu síðar valt bíll á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Stekkjabakka. Þaðan voru tveir fluttir á slysadeild til skoðunar.

Þar að auki er slökkvilið nú að störfum í íbúð við Bjarnhólastíg í Kópavogi. Þar hafði pottur gleymst á eldavél en enginn heima. Reykræsting stendur nú yfir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert