Grunur um kynferðisbrot

Frá Vestmannaeyjum.
Frá Vestmannaeyjum. Sigurður Bogi Sævarsson

Maður er í haldi lögreglunnar í Vestmannaeyjum grunaður um kynferðisbrot. Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn, segir að málið sé á viðkvæmu rannsóknarstigi og ekki hægt að upplýsa nánar um í hverju brotið fellst.

Vísir greindi fyrst frá málinu en þar er talað um nauðgun. Jóhannes segir það ekki rétt, ekki sé um nauðgun að ræða heldur grunur um kynferðisbrot.

Ofbeldið átti sér stað snemma á sunnudagsmorgni en maðurinn var handtekinn í gærdag. 

Um helgina var haldin goslokahátíð í Vestmannaeyjum og mikið fjölmenni í bænum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert