Tvær teknar fyrir kókaínsmygl

Kókaín. Mynd úr safni.
Kókaín. Mynd úr safni. AFP

Tvær franskar konur sitja nú í gæsluvarðhaldi eftir að hafa reynt að smygla rúmlega 400 grömmum af kókaíni til landsins. Konurnar komu með flugi frá London í lok maí. Tollverðir grunuðu þær um græsku þegar í flugstöð Leifs Eiríkssonar var komið, stöðvuðu þær og höfðu samband við lögregluna á Suðurnesjum. Stúlkurnar voru handteknar og færðar til rannsóknar. Önnur þeirra reyndist hafa hluta efnanna innvortis en hin hafði komið þeim fyrir utan á líkama sínum. Þær eru báðar í kringum tvítugt. Rannsókn málsins er á lokastigi.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja  til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert