Fimm líkamsárásir tilkynntar í Vestmannaeyjum

Fjölmenni var í Vestmannaeyjum um helgina.
Fjölmenni var í Vestmannaeyjum um helgina. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Nokkrar kærur liggja fyrir vegna líkamsárása sem áttu sér stað í Vestmannaeyjum um helgina. Eins og við var að búast hafði lögreglan í Vestmannaeyjum í mörg horn að líta í liðinni viku enda töluverður fjöldi fólks í bænum og þá sérstaklega um helgina en þá fór fram Goslokahátíð.

Hjá lögreglunni er jafnframt til rannsóknar meint kynferðisbrot sem var tilkynnt að morgni sunnudags. Karlmaður á sextugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknar málsins en hefur verið látinn laus.

Í yfirliti lögreglunnar kemur fram að fimm líkamsárásir voru tilkynntar eftir skemmtanahald helgarinnar. Fjórar þeirra hafa þegar verið staðfestar. Ekki er um alvarlega áverka að ræða í þessum árásum en í einni þeirra kvarnaðist upp úr tönn.

Þar að auki komu tvö fíkniefnamál upp í liðinni viku en í öðru málinu var drengur á þrettánda ári tekin með tóbaksblandað maríjúana.  Í framhaldi af því var maður um tvítugt handtekinn og viðurkenndi hann að hafa selt drengnum efnið.

Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í liðinni viku en um var að ræða árekstur þriggja bifreiða á Heiðarvegi.  Ökumaður einnar bifreiðarinnar kvartaði yfir eymslum eftir óhappið.  Lítið tjón varð hins vegar á bifreiðunum.

Fimm kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum, en um er að ræða m.a. brot á stöðvunarskyldu,  vanræksla á að nota öryggisbelti í akstri og notkun farsíma í akstri án handfrjáls búnaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert