Píratar enn langstærstir

Mynd frá eldhúsdagsumræðum á Alþingi.
Mynd frá eldhúsdagsumræðum á Alþingi. mbl.is/Golli

Píratar njóta næstum tíu prósentustiga meiri stuðnings en Sjálfstæðisflokkurinn, sem nýtur næstmests fylgis. Þetta er meðal niðurstaðna könnunar MMR, þar sem könnuð var afstaða fólks til flokka á Alþingi.

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 24. til 30. júní 2015. Fylgi Pírata mældist nú 33,2%, borið saman við 32,4% í síðustu könnun (sem lauk 24. júní s.l.) og mælast með mest fylgi allra flokka á Íslandi.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,8%, borið saman við 23,3% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 12,0%, borið saman við 10,5% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,6%, borið saman við 10,0% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 9,3% borið saman við 11,6% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 5,6%, borið saman við 6,8% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%. 

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 30,4% en mældist 31,9% í síðustu mælingu (sem lauk þann 24. júní s.l.) og 29,4% í maí s.l. (lauk 2. júní).

Nánar á vef MMR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert