Hækka toll á búvörur

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Atvinnuvegaráðuneytið hefur hækkað tolla, sem leggjast á innflutningskvóta á búvörum samkvæmt WTO-samningnum, um ríflega 7%. Tollarnir vega þungt í verðmyndun innfluttrar búvöru og hækkun þeirra mun því að öllum líkindum þýða verðhækkun til neytenda. Þetta kemur fram á vef Félags atvinnurekenda.

Samkvæmt samningnum um Alþjóðaviðskiptastofnunina (WTO) eru íslensk stjórnvöld skuldbundin að hleypa örlitlu hlutfalli innanlandsneyslu á búvörum inn til landsins á lægri gjöldum en þeim gríðarlega háu verndartollum en almennt eru lagðir á. Innflutningurinn er þó ekki tollfrjáls, heldur leggja stjórnvöld á hann magntoll, fasta krónutölu á hvert kíló innfluttrar vöru.

Magntollarnir á búvörur sem flytja má inn samkvæmt WTO-samningnum hækka um á bilinu 7,1 til 7,5% frá fyrra ári samkvæmt auglýsingu atvinnuvegaráðuneytisins um tollkvóta. Innflutningsheimildirnar gilda frá 1. júlí 2015 til 30. júní 2016 en ráðuneytið hefur þó raunar enn ekki lokið úthlutun þeirra þótt komið sé fram í júlí.

Hækkun tollanna styðst væntanlega við ákvæði 12. greinar tollalaga, þar sem landbúnaðarráðherra er heimilað að leggja á tollkvótana magntoll, sem nemur mismuninum á „ríkjandi heildsöluverði“ viðkomandi vöru á innanlandsmarkaði og innflutningsverði. Þessi lagaregla er sett til verndar innlendum framleiðendum og þýðir í raun að lækki innflutningsverð búvöru jafnar ríkið það út með því að hækka tollinn. Ef heildsöluverð innlendra birgja hækkar eltir ríkið það jafnframt með tollahækkun sem gerir innflutninginn dýrari. Þannig er komið í veg fyrir að neytendur hagnist á hagstæðri þróun innflutningsverðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert