Gekk örna sinna og kveikti í sinu

Unnið að því að slökkva í sinueldinum sem kviknaði.
Unnið að því að slökkva í sinueldinum sem kviknaði. mbl.is/Lögreglan á Vesturlandi

Erlendur hjólreiðamaður kveikti í salernispappír eftir að hafa gengið örna sinna út í hrauninu neðan við Bifröst í Norðurárdal með þeim afleiðingum að það kviknaði í þurrum mosanum í hrauninu. Hann tæmdi úr vatnsflösku sem hann var með en það dugði ekki til og því var kallað á slökkviliðið sem mætti og slökkti glæðurnar í mosanum.

Lögreglan á Vesturlandi vill beina því til ferðamanna að fara varlega með allan eld því gróður er sérstaklega þurr í Borgarfirði þessa dagana.

Gróður er sérstaklega þurr í Borgarfirði þessa dagana.
Gróður er sérstaklega þurr í Borgarfirði þessa dagana. mbl.is/Lögreglan á Vesturlandi
Lögregla og slökkvilið mættu á svæðið til að ráða niðurlögum …
Lögregla og slökkvilið mættu á svæðið til að ráða niðurlögum eldsins.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert