Japana vantar hvalkjöt

Gert að hval í Hvalstöðinni í Hvalfirði.
Gert að hval í Hvalstöðinni í Hvalfirði. mbl.is/Ómar Óskarsson

Birgðir af hvalkjöti í Japan hafa ekki verið minni í 15 ár en þær eru nú. Blaðið The Japan Times greindi frá því í gær að í lok maí s.l. hefðu einungis verið til 1.157 tonn af hvalkjöti á lager og þurfti að fara aftur til mars árið 2000 til að finna minni birgðir.

Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að kjötskorturinn sé rakinn til þess að Japanir veiddu enga hvali í Suður-Íshafinu í byrjun árs vegna niðurstöðu Alþjóðadómstólsins í Haag í mars 2014. 

Þá segir The Japan Times að von sé á 1.800 tonnum af hvalkjöti frá Íslandi eftir Norðausturleiðinni til að bæta birgðastöðuna. Blaðið segir að innflutningurinn sé háður óvissu. Andstæðingar hvalveiða reyni að stoppa útflutninginn. 

Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., sagði tollafgreiðslu í Japan vera tímafreka venju samkvæmt. „Þeir rannsaka þetta allt upp á nýtt og nota aðferðir sem enginn annar notar. Þetta tekur óratíma og er ekkert nýtt,“ sagði Kristján. „Við værum ekkert að senda þetta út ef enginn vildi sjá þetta. Þú þarft alltaf að hafa lager því verslun með tómar hillur hefur ekki mikinn bísniss.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert