Erlendur karlmaður grunaður um að smita konur af alvarlegum sjúkdómi

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, í samvinnu við sóttvarnalækni, rannskar nú mál þar sem karlmaður af erlendum uppruna er grunaður um að hafa smitað ungar konur af alvarlegum sjúkdómi.

Rannsóknin snýr meðal annars að því að skoða hvort fleiri konur kunni að hafa verið í samneyti við manninn og hvort að þær séu smitaðar. Vegna alvarleika málsins verður farið fram á gæsluvarðhald yfir manninum seinna í dag á meðan lögreglan vinnur að frumrannsókn málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert