MS hafi víst leynt gögnum

Ólafur Stephensen.
Ólafur Stephensen.

Orrahríð framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda og forstjóra Mjólkursamsölunnar heldur áfram en fyrrnefndi, Ólafur Stephensen, hefur sent tilkynningu til fjölmiðla þar sem hann svarar fréttatilkynningu Ara Edwald, sem sakaði Ólaf um „vítaverð ummæli“ í tilkynningu í gær.

Ólafur segir að í ljósi ásakana forstjóra MS sé rétta að rifja upp enn eina fréttatilkynninguna, þá sem Samkeppniseftirlitið sendi frá sér í desember sl. um samkeppnismál Mjólkurbúsins Kú gegn Mjólkursamsölunni.

Ólafur vitnar beint í tilkynninguna en hefur gert eftirfarandi leturbreytingar til áhersluauka:

„Fyrir áfrýjunarnefnd lagði MS í fyrsta sinn fram tiltekið gagn, samning við Kaupfélag Skagfirðinga frá 15. júlí 2008. Undir rannsókn málsins hafði MS aldrei vísað til eða greint Samkeppniseftirlitinu frá þessum samningi, þrátt fyrir að Samkeppniseftirlitið hefði ítrekað óskað eftir skýringum og gögnum frá MS vegna umræddrar verðlagningar. Í úrskurði áfrýjunarnefndar segir um þetta: 

Þótt ekki hafi komið haldbærar skýringar á því hjá áfrýjanda hvers vegna bæði samningurinn hafi ekki verið lagður fram við meðferð málsins hjá Samkeppniseftirlitinu né grundvallargögn um efndir hans og uppgjör hjá áfrýjunarnefndinni telur nefndin sér skylt á grundvelli rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar að koma málinu í þann farveg að upplýst sé um þessi atriði. Við munnlegan málflutning skýrðist málið ekki frekar að þessu leyti. Við svo búið telur áfrýjunarnefndin sér ekki unnt að taka efnislega afstöðu til málsins. Verður því ekki komist hjá því að ógilda hinn kærða úrskurð Samkeppniseftirlitsins og leggja fyrir eftirlitið að taka á ný afstöðu til málsins að undangenginni frekari rannsókn og að fengnum sjónarmiðum er varða þýðingu samningsins á milli áfrýjanda og KS frá 15. júlí 2008, uppgjöri á milli aðila hans og efndum á því tímabili sem meint brotastarfsemi stóð yfir.“ 

Samkeppniseftirlitið mun í samræmi við úrskurð áfrýjunarnefndar taka málið aftur til meðferðar. Jafnframt mun Samkeppniseftirlitið taka til rannsóknar hvaða ástæður liggja fyrir því að umræddur samningur var ekki lagður fyrir eftirlitið við rannsókn málsins, en viðurlög geta legið við því að halda upplýsingum frá eftirlitinu við rannsókn máls.“

Ólafur segir tilkynningu Samkeppniseftirlitsins gefa til kynna að gögnum hafi sannarlega verið leynt og segir málflutning forstjóra MS dæma sig sjálfan „í ljósi þessara staðreynda málsins.“

Frétt mbl.is: Rannsókn miðar vel

Frétt mbl.is: „Rætnar ásakanir og rangfærslur“

Frétt mbl.is: Rekur á eftir Samkeppniseftirlitinu

Frétt mbl.is: Rannsaki nánar hugsanlega misnotkun MS

Ari Edwald.
Ari Edwald. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert