Annie Mist hætt keppni

Annie Mist Þórisdóttir.
Annie Mist Þórisdóttir. Ljósmynd/Brian Sullivan

Annie Mist Þórisdóttir þurfti að hætta keppni á Heimsleikunum í crossfit. DV greinir frá þessu og þar segir að hitaslag sem Annie varð fyrir á föstudag hafi haft mun meiri áhrif á líkama hennar en talið var í fyrstu.

Andrew Martin, einn af sjúkraþjálfurum Annie, segir í viðtali við DV að vökvatap og hiti hafi haft áhrif á líkama hennar. Þó hafi Annie verið þrjósk á laugardeginum og hún vildi halda áfram keppni. Annie var í 19. sæti í kvennaflokki fyrir daginn í dag.

Annie Mist hefur unnið tvisvar á heimsleikunum, árin 2011 og 2012.

Tvær íslenskar konur eru nú í toppbaráttunni á lokadegi keppninnar.

Hér að neðan má fylgjast með keppninni í beinni.

<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="315" src="https://www.youtube.com/embed/K2Cm1wMgXLg" width="560"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert