Meðvitundarlaus eftir árás

Karlmaður á fimmtugsaldri var fluttur meðvitundarlaus á slysadeild í nótt eftir líkamsárás í Tryggvagötu, til móts við Tollhúsið. Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í tengslum við árásina og færður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins.

Vitni á vettvangi tjáðu lögreglu að sá sem varð fyrir árásinni hefði ítrekað áreitt þann sem var handtekinn, en engin vitni voru að átökunum sjálfum. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu liggja ekki fyrir upplýsingar um líðan hins slasaða aðrar en þær að hann mun hafa komist til meðvitundar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert