„Ég velti því fyrir mér hvort eðlilegt sé að íbúar í öðrum sveitarfélögum njóti niðurgreiðslu Reykvíkinga,“ segir Ingvar Jónsson, fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina í menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar.
Á fundi ráðsins hinn 22. júní síðastliðinn var lagt fram svar við fyrirspurn hans um dreifingu á áskriftarhópi Borgarleikhússins eftir búsetu á höfuðborgarsvæðinu og kemur þar meðal annars fram að flestir áskrifendur eiga lögheimili í póstnúmeri 105, eða 9,52%, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Næstir á eftir koma íbúar í 108 Reykjavík og eru þeir 8,74% áskrifenda. Því næst koma íbúar með lögheimili í 200 Kópavogi, alls 8,54%, og 210 Garðabæ, eða 7,79%. Þá kemur einnig fram í svarinu að 7,51% áskrifenda býr í 112 Reykjavík, 7,01% í 101 Reykjavík, 6,13% í 220 Hafnarfirði og 5,93% í póstnúmeri 107.