Í síðustu viku voru 103 kærðir fyrir að aka of hratt í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi. Einn þeirra reyndist jafnframt vera sviptur ökurétti. Flestir hraðrakstrarnir voru á þjóðvegi 1 í Skaftafellssýslunum. Um 60 % þeirra sem aka of hratt eru erlendir ferðamenn á bílaleigubílum. Hraði þeirra er líka að jafnaði meiri en íslenskra ökumanna sem lenda í hraðamælunum því meðal sekt erlendu ökumannanna þessa viku er um 43 þúsund krónur en þeirra íslensku um 39 þúsund krónur.
Þá var einn kærður fyrir að flytja 11 ára barn í skotti skutbifreiðar sinnar í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi. Skammt er síðan farþegi sem fluttur var með sama hætti kastaðist út úr bifreið og lést þegar bifreiðin valt á Biskupstungnabraut. Ökumaður þeirrar bifreiðar fékk nýverið dóm fyrir manndráp af gáleysi. Ökumaður þessarar bifreiðar sleppur hinsvegar vel, þarf einungis að greiða 15 þúsund króna sekt fyrir brot sitt.
Þann 26. júlí stóðu starfsmenn á Geysi erlendan ferðamann að því að hnupla munum úr versluninni þar. Maðurinn var handtekinn og yfirheyrður af lögreglu. Hann lauk síðan málinu með því að gangast undir sektargerð og greiðslu sektar að upphæð 45 þúsund krónur. Andvirði munanna sem hann stakk á sig var 21 þúsund krónur. Þeir skiluðu sér til verslunarinnar óskemmdir.