Unnið að lagningu nýs göngustígs upp Esju

Framkvæmdir við nýjan göngustíg í Esjunni eru hafnar og þeim …
Framkvæmdir við nýjan göngustíg í Esjunni eru hafnar og þeim á að ljúka í ágúst.

Skógræktarfélag Reykjavíkur vinnur að uppgræðslu og endurbótum á votlendissvæði í Einarsmýri í Esjunni en verkið felst í að flytja núverandi göngustíg til austurs yfir á melasvæði þar sem álagsþol er meira.

„Um er að ræða vestari göngustíginn en hann liggur í gegnum Einarsmýri og er orðinn mjög leiðinlegur að sjá,“ segir Magnús Bjarklind, hjá EFLU verkfræðistofu og umsjónarmaður eftirlits verksins.

„Lögð verður rík áhersla á að fella stíginn vel að umhverfi sínu og landslagi en markmiðið með framkvæmdunum er að bæta gönguleiðina og auka þannig öryggi göngumanna en jafnframt græða upp rof og álagsskemmdir í Einarsmýri og endurheimta staðargróður.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert