Teknir á 142 og 145 km hraða

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði för tveggja ökumanna sem óku báðir á yfir 140 km hraða á klukkustund innanbæjar í nótt.

Um miðnætti voru lögreglumenn við hraðamælingar á Reykjanesbraut við Kauptún.   Þar voru tveir ökumenn stöðvaðir fyrir akstur á 142 km/klst. og annar á 146 km/klst.

Samkvæmt dagbókarfærslu lögreglunnar er sá sem ók á 142 km/klst. 17 ára gamall.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert