Tafir á umferð

mbl.is/Þórður

Í dag þriðjudaginn 28. júlí milli kl 9:00 og 16.00 verður unnið við malbikun á slaufu/aðrein frá Sæbraut/Reykjanesbraut að Miklubraut. Hjáleið verður um mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Stekkjabakka/Smiðjuvegar.

Í dag þriðjudaginn 28. júlí verður unnið við fræsingu og malbikun á Úlfarsfellsvegi að Reykjavegi frá kl. 6.00 og fram eftir degi. Búast má við truflun á umferð.

Vegna framkvæmda við undirgöng undir Vesturlandsveg á móts við Aðaltún í Mosfellsbæ, er umferð þar beint um hjáleið. Hraði er tekinn niður í 50 km/klst. Áætlað er að nota þurfi hjáleiðina fram yfir miðjan september og að framkvæmdum ljúki í nóvember, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni.                       

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert