Jón áfram forstjóri Matvælastofnunar

Jón Gíslason.
Jón Gíslason.

Jón Gíslason hefur verið skipaður forstjóri Matvælastofnunar til næstu fimm ára. Skipunin tekur gildi 1. ágúst næstkomandi. Níu einstaklingar sóttu um starfið en sérstök hæfnisnefnd lagði mat á umsækjendur og gerði tillögu til ráðherra.

Jón hefur gegnt starfi forstjóra Matvælastofnunar frá því hún var sett á laggirnar árið 2007.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert