Sendir Indverjum samúðarkveðjur

Bessastaðir
Bessastaðir Sigurður Bogi Sævarsson

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur í dag, miðvikudaginn 29. júlí 2015, sent forseta Indlands Pranab Mukherjee samúðarkveðjur frá sér og íslensku þjóðinni vegna andláts fyrrum forseta Indlands, Abdul Kalam. Þettta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsetaembættinu.

Í kveðjunni minnist forseti á heimsókn Kalams til Íslands árið 2005 sem var fyrsta heimsókn indversks þjóðhöfðingja til Íslands, og reyndar til Norðurlanda, og þakkaði þá vináttu og stuðning sem hinn látni forseti hefði sýnt Íslendingum og samvinnu Íslendinga og Indverja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert