Slegist um íbúðir til leigu

mbl.is/Sigurður Bogi

„Eftirspurnin er margfalt meiri en framboðið. Ef húsnæði er auglýst til leigu á sanngjörnu verði er eftirspurnin þrjátíu- til hundraðfalt meiri en framboð.“

Þetta segir Svanur Guðmundsson, leigumiðlari hjá húsaleiga.is, í umfjöllun um leigumarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu í Morgunblaðinu í dag.

„Fólk hefur gefist upp á að fá húsnæði leigt. Leiguverðið er yfirleitt það hátt að fólk ræður ekki við það. Leigumiðlun er að leggjast af. Leigusalar finna leigjendur á Facebook og leigja þeim milliliðalaust. Leigusalar stjórna markaðnum. Margir þeirra virða hvorki uppsagnarfrest né húsaleigulög.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert