Slösuðust í bílveltu í Ísafjarðardjúpi

Sjúkrahúsið Ísafirði
Sjúkrahúsið Ísafirði mbl.is/Sigurður Bogi

Tveir voru fluttir á sjúkrahúsið á Ísafirði í nótt eftir bílveltu í Ísafjarðardjúpi. Hvorugur er í lífshættu en ekki liggur fyrir hversu alvarlega þeir eru slasaðir, að sögn lögreglunnar á Ísafirði.

Slysið varð um hálf þrjú leytið í nótt og ekki er vitað hvað olli því að ökumaðurinn missti stjórn á bifreiðinni. Mennirnir voru tveir í bílnum en bifreiðin er mikið skemmd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert