„Á þónokkur ár eftir“

Varðskipið Týr á 40 ára afmæli í ár og eyðir afmælissumrinu í slipp. Þar er reglubundnu viðhaldi sinnt auk þess sem gert er að skemmdum sem hlutust þegar rússneska skólaskipið Kruzens­htern sigldi inn í hlið þess fyrr í sumar. 

Týr var nýlega við suðurstrandir Evrópu þar sem áhöfnin sinnti landamæragæslu fyrir Frontex, en allt að 360 flóttamenn voru á dekki skipsins þegar mest lét í björgunaraðgerðum. mbl.is leit við í slippnum og heilsaði upp á Tý.

Frétt mbl.is: Týr óhaffær en gert við Þór

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert