Malbikað á Miklubraut

Malbikað í Ártúnsbrekku
Malbikað í Ártúnsbrekku mbl.is/Rax

Í dag verður unnið við fræsingu og malbikun frá frárein af Miklubraut  og upp á Höfðabakka. Vinna hófst klukkan sjö í morgun  og stendur fram eftir degi. Búast má við umferðartöfum á meðan á framkvæmdum stendur.

Vegna framkvæmda við undirgöng undir Vesturlandsveg á móts við Aðaltún í Mosfellsbæ, er umferð þar beint um hjáleið. Hraði er tekinn niður í 50 km/klst. Áætlað er að nota þurfi hjáleiðina fram yfir miðjan september og að framkvæmdum ljúki í nóvember.                       

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert