Þrír ökumenn undir áhrifum fíkniefna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði för þriggja ökumanna í gærkvöldi sem allir reyndust vera undir áhrifum fíkniefna.

Einn þeirra var stöðvaður um kvöldmatarleytið við hefðbundið umferðareftirlit lögreglu. Hann reyndist undir áhrifum fíkniefna, sviptur ökuréttindum og með fíkniefni í fórum sínum. Laus að sýnatöku lokinni.

Tveir ökumenn til viðbótar voru stöðvaðir í gærkvöldi grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Lausir eftir sýnatöku.

 Um eitt leytið í nótt voru höfð afskipti af ökumanni hópferðabifreiðar. Hann ekki með tilskilinn gögn meðferðis. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu má hann eiga von á sekt vegna þessa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert