Vann 15 milljónir í úrdrætti DAS

Egilsstaðabúi á sextugsaldri var 15 milljón krónum ríkari í dag, þegar miðanúmerið hans var dregið út í vikulegum úrdrætti Happdrættis DAS. Hann átti einfaldan miða, en aðalvinningur á tvöfaldan miða var íbúð að eigin vali að verðmæti 30 milljónir króna.

Vinningshafinn óskaði nafnleyndar en var bæði undrandi og glaður þegar honum bárust tíðindin. Vinningurinn er skattfrjáls og verður lagður inn á bankareikning vinningshafa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert