Ammóníak lak inn í verslun Hagkaupa

Lögreglumenn og slökkvilið voru á vettvangi og lokuðu svæðinu af …
Lögreglumenn og slökkvilið voru á vettvangi og lokuðu svæðinu af til öryggis. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Tilkynnt var um minniháttar ammoníaksleka inn í verslun Hagkaupa á Akureyri rétt upp úr níu í kvöld. Lögreglan á Akureyri hefur ekki fengið tilkynningar um að nokkrum hafi orðið meint af, en verslunin var rýmd og henni lokað.

Lekinn átti upptök sín í verksmiðju Vífilfells, sem er við hliðina á. Vindátt var þannig að mengunin fór beint að versluninni, sem var rýmd eins og áður segir.

Lokunin stóð yfir í hálftíma og búið er að opna verslunina að nýju.

Starfsmenn Vífilfells og Kælismiðjunnar Frosts unnu að því að koma …
Starfsmenn Vífilfells og Kælismiðjunnar Frosts unnu að því að koma öllu í lag í verksmiðjunni. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert