Opna þrjú ný hótel á einu ári

Hótel Borg stækkar.
Hótel Borg stækkar. mbl.is/Baldur Arnarson

Iðnaðarmenn leggja nú lokahönd á nýja viðbyggingu Hótels Borgar í Reykjavík og verður tekið á móti fyrstu gestunum í næstu viku.

Eftir stækkunina verða 99 herbergi á þessu sögufræga hóteli. Það er samliggjandi við Apótek hótel í Pósthússtræti sem einnig er rekið undir merkjum Keahótela. Það var opnað í desember sl. Alls verða 144 herbergi á hótelunum tveimur.

Síðar í ágústmánuði munu Keahótel taka í notkun Hótel Skugga á Hverfisgötu í Reykjavík. Þar verða 100 herbergi og þjónusta á jarðhæð. Með haustinu verður svo Storm hótel í Þórunnartúni opnað og verður það 5. Keahótelið í Reykjavík, að því er fram kemur í umfjöllun um þessi nýju hótel í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert