Stal handspritti á Landspítala

Landspítalinn við Hringbraut.
Landspítalinn við Hringbraut. mbl.is/Ómar

Rétt fyrir kl. 9 í morgun var óskað eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna konu sem væri að stela handspritti inni á Landspítalanum við Hringbraut. Var hún handtekin skammt frá vettvangi og færð á lögreglustöð.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var hún í talsvert annarlegu ástandi sökum ölvunar og var hún því vistuð í fangaklefa þangað til hægt er að taka af henni framburðarskýrslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert