Fjölnir í víking til Færeyja

Fjölnir fer ferða sinna í Þórshöfn á mótorhjóli af gerðinni …
Fjölnir fer ferða sinna í Þórshöfn á mótorhjóli af gerðinni Harley Davidson Night Train frá 2006 sem Spessi ljósmyndari lét breyta frá grunni.

Fjölnir Geir Bragason, einnig þekktur sem Fjölnir Tattú, er staddur í Færeyjum þessa dagana á lokaspretti flúrvertíðar sinnar í Þórshöfn. Þar hefur hann haft aðsetur í júlímánuði og flúrað mann og annan.

Fjölnir er ekki nýr gestur í Færeyjum en síðustu ár hefur hann sótt eyjarnar heim reglulega og flúrað eyjaskeggja. „Ég fór til Færeyja fyrst '98-'99, kom tvö ár í röð og var að tattúvera. Ég hafði verið að tattúvera mikið úti á landi og það kom í stólinn til mín strákur sem heitir Rasmus Rasmussen og kom með þessa hugmynd um að ég færi til Færeyja, það væri enginn flúrari þar. Svo fórum við til Færeyja í kjölfarið, ég og Helgi Jacobsen. Ég varð strax mjög hrifinn af Færeyjum og fyrir Íslending sem kemur úr hrikalegu umhverfi þá er þetta alveg eftir mínum smekk, hrikalegt og fallegt. Fólkið hér er mjög skemmtilegt, viðmótsþýtt og gestrisið. Eiginlega vandræðalega gestrisið,“ segir Fjölnir og hlær.

Um aðstöðu sína í Færeyjum segir Fjölnir að hann fái oftast að vera fyrir ofan hárgreiðslustofuna Salong Madonna í miðbæ Þórshafnar og flúra. „Ég tók bara með mér tösku, þetta er fyrirferðalítill bisness.“

Menningarsendiherra á vélfáki

Flúrlistin hefur tekið við sér í Færeyjum síðan Fjölnir kom þangað fyrst. Nú leggst iðnin ekki lengur af jafnharðan og hann fer úr landi, en fyrirferðamesta flúrara þarlenda nefnir hann Dia Jakobsen og Terje Skipenes, gítarleikara í Tý. „Þetta er að vaxa. Það eru fleiri flúrarar að koma upp og áhuginn með. Ég hef verið tuttugu ár í bransanum og þetta hefur vaxið gríðarlega, er ennþá að vaxa og maður sér ekki fyrir endann á því.“

Kynni Fjölnis af Færeyjum færðust svo á næsta stig árið 2009 þegar hann og nokkrir spaðar, eins og Fjölnir lýsir þeim, gerðu sér ferð til Færeyja á mótorhjólum. Fjölnir og félagi hans, Jón Páll, opnuðu flúrstofu og gerð var heimildamynd um ævintýri þeirra í eyjunum.

„Við gerðum þetta í tilefni af því að Færeyingar voru þeir einu sem studdu okkur undanbragðalaust í bankahruninu. Þeir buðu okkur hjálp án þess að spyrja nokkurra spurninga. Ég hef tekið eftir því að Íslendingar vita minna um Færeyinga heldur en Færeyingar vita um Íslendinga. Íslendingar hafa mjög sterka þýðingu í huga Færeyinga. Ég rek það að hluta til þess að í stríðinu fóru margir héðan að byggja upp á Íslandi og fóru mikið á togarana eftir það. Einhvern veginn öðlaðist Ísland sess í huga Færeyinga svo okkur langaði til þess að veita Íslendingum innsýn í landið. Eftir það kolféll ég alveg fyrir eyjunum og ég hef komið hingað síðan þá, allt að fjórum sinnum á ári.“

Húðflúrhátíð og breytt viðhorf

Fjölnir hefur staðið að húðflúrhátíðinni FO Tatt Fest í Færeyjum síðustu ár. „Hugmyndin kom upp á Ólafsvöku 2010 þegar Færeyingurinn Peter Zachariasen og Ósk Gunnarsdóttir unnusta hans, komu með þessa hugmynd til mín um að halda alvöru tattúfestival í Þórshöfn.

Við Páll Sch. Thorsteinson komum henni svo á koppinn 2012, en hann bjó hér lengi og er öllum hnútum kunnugur í eyjunum. Hátíðin hefur vaxið og dafnað síðan og er nú orðið alþjóðleg hátíð með færeyskum tónlistarmönnum. Hér er nefnilega gríðarlega sterk tónlistarflóra eins og heima. Ég vildi líka kynna Færeyinga fyrir öllu sem hægt er að gera í tattúinu. Fá inn stærstu spaðana í bransanum í Skandinavíu til Færeyja og hef verið með svona 12-14 listamenn sem allir saman hafa kolfallið fyrir eyjunum.“

Viðhorf fólks til flúrs hafa einnig breyst. „Þegar ég kem inn í bransann er þetta svolítið nýtt. Ég er einn af þeim fyrstu heima og sá fyrsti í Færeyjum. Nú er komin upp heil kynslóð sem þekkir ekki heim án tattús. Hugarfarið hefur breyst mjög mikið. Þú þarft ekki að vera stimplaður sem einhver skuggabaldur fyrir að vera með tattú.“

Flúrtíska

Færeyingar eru þekktir fyrir trúarhita og Fjölnir segist merkja það í vali fólks á flúri. „Trúað fólk kemur og fær sér tattú með trúarlegu ívafi. Fólk fær sér líka mikið fjölskyldutengd tattú. Heima er fólk að fá sér börnin sín og kannski látna foreldra. Hérna er fólk að fá sér öll systkinin og ömmu og afa og allan frændgarðinn“ segir Fjölnir kíminn.

Flúrmenninguna segir hann breytast hratt og að Færeyingar hafi verið fljótir að fylgja henni eftir. Aðsurður um hvort menn séu alveg hættir að fá sér ættbálkadruslustimpil (e. tribal tramp stamp) segir Fjölnir það ekki alveg dottið út en ættbálkaflúrin hafi komið aftur í annarri mynd. Þau hafi mikið þróast yfir í handstungin flúr. „Þetta fer í raun alveg aftur til upprunans. Þetta eru geometrísk mynstur, víkinga- og keltnesk tattú og svokallaðar mandölur.“ Handstungin flúr eru gerð einfaldlega með nál og bleki, án flúrvélanna sem flestir kannast við.

Tribal-stíllinn frá níunda og tíunda áratugnum lifir þó eitthvað enn.

Helstu breytinguna á vali fólks á flúri segir hann vera að fólk sé strax farið að fá sér stærri tattú. „Fólk er ekki bara að byrja í litlu og fara svo í miðlungs og svo stórt. Fólk byrjar oft á ermum og bökum.“

Ekki flýta þér

Tæknina í flúrinu segir Fjölnir hafa breyst mjög mikið. „Þetta er orðinn stór bransi og það er mikil samkeppni í öllu sem tengist flúrinu, svo sem litunum, tattúbyssunum og nálunum. Tattúin endast miklu betur. Við stingum miklu nákvæmar í skinnið og þekking okkar á skinninu er orðin miklu betri.“

Blaðamaður fékk Fjölni til þess að útlista ráðleggingar fyrir fólk sem hyggur á flúrun. „Ekki flýta þér. Taktu þér tíma. Skoðaðu þig vel um og veldu þér góðan flúrara. Ekki pæla í verðinu heldur í gæðunum.“ Þá vísar Fjölnir í engilsaxneskt spakmæli sem þýðist svo: „Góð flúr eru ekki ódýr og ódýr flúr eru ekki góð.“

Norræn goð og víkingar eru vinsælt efni í flúr í …
Norræn goð og víkingar eru vinsælt efni í flúr í Færeyjum. Hér er Þór þrumuguð með víkingaskip í forgrunni. Ljósmynd/Fjölnir Geir Bragason
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert