Svo virðist sem nóttin hafi verið með rólegra móti hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Klukkan 24:40 var ökumaður stöðvaður, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Rúmlega eitt í nótt hafði lögregla afskipti af ökumanni. Bíllinn reyndist ótryggður og farþegi er grunaður um að hafa haft fíkniefni í fórum sínum.
Klukkan hálfþrjú greip lögreglan svo annan ökumann við ölvunarakstur.
Þar að auki komu upp nokkur smærri mál á höfuðborgarsvæðinu, mál á borð við hávaðaútköll.