Fékk súpu yfir sig og brenndist

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Súpa helltist yfir kokk á Hótel Leirubakka í kvöld. Lögreglan á Hvolsvelli hafði ekki upplýsingar um hvort meiðsl hans væru alvarleg, en sjúkrabíll ók manninum í forgangi undir læknishendur í Reykjavík.

Að öðru leyti hefur helgin verið róleg hjá embættinu, lítið um hraðakstur og tveir fíkniefnaakstrar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert