Bílslys við Siglufjörð

Slysið varð rétt vestan við Strákagöng, sem liggja norðvestan við …
Slysið varð rétt vestan við Strákagöng, sem liggja norðvestan við Siglufjörð. www.mats.is

Fimm voru fluttir á sjúkrahús á Siglufirði eftir árekstur rétt vestan við Strákagöng í dag. Samkvæmt lögreglu stöðvaði ökumaður fyrri bílsins fyrir rollum sem gengu yfir veginn og klessti þá sá síðari aftan á hann. Við það fór fyrri bíllinn út af veginum

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er ekki talið að um alvarleg meiðsli sé að ræða, en fólkið var flutt til öryggis á sjúkrahús til skoðunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert