Kópurinn furðuhress

Selirnir virtust lítið kippa sér upp við atburði dagsins.
Selirnir virtust lítið kippa sér upp við atburði dagsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Strokukópurinn í Laugardal er hress og lítið sér á þreytu að sögn Hilmars Össurarsonar, dýrahirðis hjá Húsdýragarðinum.

Líkt og fram hefur komið fann kópurinn útgönguleið frá selalauginni og glufu undir girðingunni í kringum garðinn. Hann skreið síðan tæpan kílómetra og endaði á tjaldsvæðinu í Laug­ar­dal.

Ljósmyndari mbl leit við í selalauginni í dag þar sem aðrir selir virtust ekki vera á neinum faraldsfæti. Þeir lágu bara á bakkanum og slökuðu á eftir viðburðaríkan dag. Félagarnir fá þó ekki að heyra reisusöguna alveg strax þar sem strokukópurinn verður ekki í lauginni næstu daga. 

Ástæðan er sú að margir starfsmenn eru í sumarfríi og því er ekki hægt að fylla strax upp í útgönguleiðina.

Hilmar segist hræddur um að selurinn myndi fara beinustu leið aftur út við óbreyttar aðstæður.

Frétt mbl.is: Einbeittur brotavilji strokukópsins

Frétt mbl.is: Sel­ur á tjald­stæðinu í Laug­ar­dal

Frétt mbl.is: Loðinn feit­ur og kjag­andi um

Annar kópur á sama aldri er öllu rólegri.
Annar kópur á sama aldri er öllu rólegri. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Selirnir virtust lítið kippa sér upp við atburði dagsins.
Selirnir virtust lítið kippa sér upp við atburði dagsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert