Maður í annarlegu ástandi var handtekinn fyrir utan hús í Kórahverfi í Kópavogi á öðrum tímanum í nótt. Maðurinn hélt á tveimur hnífum og hótaði að skaða sjálfan sig. Hann er vistaður í fangageymslu þar til hægt verður að ræða við hann.
Um svipað leyti var för ökumanns stöðvuð á Strandvegi en hann er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.