Tillaga um afglæpavæðingu vændis samþykkt

Tillagan hefur verið umdeild.
Tillagan hefur verið umdeild. AFP

Mannréttindasamtökin Amnesty International samþykktu í dag tillögu um afglæpavæðingu vændis á heimsþingi samtakanna í Dublin. Alþjóðaráð samtakanna munu nú þróa stefnu samtakanna í málinu.

Efnislega hafa samtökin því nú ákveðið að beita sér fyrir því að ríki heimsins aflétti refsingum af iðju vændisfólks, þar sem ekki er um að ræða fórnarlömb mansals, börn eða fórnarlömb annarrar nauðungar.

Íslandsdeild Amnesty sat hjá í atkvæðagreiðslunni og studdi tillöguna ekki. Ef tillaga Íslandsdeildarinnar hefði verið samþykkt, þá hefði Amnesty beitt sér fyrir því að ekki yrði lögð refsing við því að selja vændi. Hins vegar hefði áfram verið refsivert að kaupa vændi og útvega húsnæði fyrir slíka starfsemi.

Í tillögunni segir að einstaklingar í kynlífsiðnaði séu mikill jaðarhópur sem í flestum tilvikum eigi á hættu að verða fyrir mismunun, ofbeldi og misbeitingu. Í frétt á vef Amnesty segir að með ályktuninni sé mælt með því að þróuð verði ný stefna samtakanna sem kveði á um að allir einstaklingar í kynlífsiðnaði njóti fullra og jafnrar verndar gegn ofbeldi, misnotkun og mansali.

Umdeild tillaga

Tillagan hefur verið umdeild en sjö kvennasamtök á Íslandi höfðu skorað á Íslandsdeild Amnesty International að beita sér fyrir því að tillagan yrði felld. Félögin, Stíga­mót, Kvenna­at­hvarfsið, Kvennaráðgjöf­in, Sam­tök kvenna af er­lend­um upp­runa, Kven­fé­laga­sam­band Íslands, Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands, og Femín­ista­fé­lag Íslands, sendu frá sér yfirlýsingu og gagnrýndu tillöguna.

Ef Am­nesty In­ternati­onal mæl­ir með að því að vændi verði gefið frjálst, er dólg­um og vændis­kaup­end­um þar með gef­in friðhelgi og mann­rétt­indi kvenna í vændi fót­um troðin. Slík stefna myndi skaða þann mik­il­væga trú­verðug­leika og það traust sem Am­nesty nýt­ur í dag. Það má ekki ger­ast.

Hörður Helgi Helga­son, formaður Íslands­deild­ar Am­nesty, sagði í samtali við mbl.is á dögunum að athugasemdum félaganna yrði komið á framfæri á þinginu en málið sé ekki þess eðlis að ákveðið hafi verið að kalla eftir umsögnum frá öðrum samtökum.

„Það vill hins veg­ar svo til að kvenna­sam­tök á Íslandi hafa í gegn­um tíðina verið af­skap­lega mik­il­væg­ir og sterk­ir sam­herj­ar okk­ar í átaki sem við stönd­um ár­lega fyr­ir í bar­áttu gegn of­beldi gegn kon­um. Það átak og þá vit­und­ar­vakn­ingu sem hef­ur átt sér stað á síðastliðnum ára­tug þökk­um við ekki síst þessu sterka sam­starfi við þessi sam­tök. Þegar þau leituðu til okk­ar og vildu koma fram sinni af­stöðu til til­lög­unn­ar þá brugðumst við að sjálf­sögðu við því og hl­ustuðum á þau rök og tök­um mikið mark á því sem þau segja og mun­um koma þeirri af­stöðu á fram­færi,“ seg­ir Hörður.

Ómögu­legt er að segja til um hvenær end­an­leg afstaða stjórn­ar Am­nesty á heimsvísu muni liggja fyr­ir eft­ir þingið en stjórn­in kem­ur sam­an ann­an hvern mánuð eða árs­fjórðungs­lega. 

Amnesty International
Amnesty International mbl.is
Hörður Helgi Helgason formaður Íslandsdeildar Amnesty.
Hörður Helgi Helgason formaður Íslandsdeildar Amnesty. mbl.is/Rósa Braga
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert