Gera athugasemdir við gæði prófgráða á Bifröst

Háskólasvæðið að Bifröst í Borgarfirði.
Háskólasvæðið að Bifröst í Borgarfirði. mbl.is/Árni Sæberg

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er niðurstaða Gæðaráðs háskóla á Íslandi sú að takmarkað traust sé borið til þess að Háskólinn á Bifröst geti tryggt að prófgráður sem skólinn veitir standist gæðakröfur.

Allir aðrir háskólar á Íslandi hafa verið metnir svo að gæðaráðið beri traust til þess að þeir geti tryggt gæði prófgráða.

Vilhjálmur Egilsson, rektor háskólans á Bifröst, segir að skýrsludrögin, þar sem niðurstöðurnar koma fram, séu trúnaðarmál og að um alvarlegt trúnaðarbrot sé að ræða. Drögin séu í umsagnarferli hjá Háskólanum á Bifröst, sem mun gera verulegar athugasemdir við þau, en hann geti ekki tjáð sig efnislega um málið að svo stöddu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert