Forsetinn ræðir við Rússa

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, átti í dag fund með sendiherra Rússlands á Íslandi, Anton Vasiliev, um stöðuna í viðskiptum landanna og mikilvægi þess að tryggja áframhaldandi farsæl viðskipti sem í áratugi hafi verið báðum þjóðunum til hagsbóta og jafnvel skipt sköpum á örlagatímum líkt og í landhelgisbaráttu Íslendinga.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsetaembættinu.

„Jafnframt sé virtur réttur ríkja til að taka afstöðu til einstakra deilna og átaka á alþjóðavettvangi með tilliti til alþjóðalaga, aðildar að bandalögum og viðhorfa grannþjóða. Á fundinum var og rætt um ýmsar leiðir sem gætu skref fyrir skref leitt til lausnar í ljósi þess að í báðum löndunum væri ríkur vilji til að varðveita langvarandi og gagnkvæma viðskiptahagsmuni þrátt fyrir tímabundinn ágreining um önnur mál.“

Þá er rifjað upp að söguleg átök á tímum kalda stríðsins, aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningur við Bandaríkin hefðu ekki komið í veg fyrir að Íslendingar og Rússar hefðu kappkostað að varðveita í áratugi hin traustu viðskiptatengsl landanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert