Hafa ekki borið kennsl á líkið

Lögreglan á Suðurlandi er með málið til rannsóknar.
Lögreglan á Suðurlandi er með málið til rannsóknar. Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Enn hefur ekki verið borin kennsl á lík karlmannsins sem fannst við Sauðdrápsgil í Laxárdal í Nesjum í gær. Réttarkrufning fór fram í gær en niðurstaða hennar liggur ekki fyrir. Engar vísbendingar hafa borist frá almenningi vegna málsins og leitað verður í innlendum og erlendum gagnasöfnum í von um að varpa ljósi á málið.

Um er að ræða lík af ungum karlmanni um það bil 186 sentímetrar á hæð með ljóst axlasítt hár klætt í svarta strigaskó með hvítri stjörnu á hlið, dökkblár íþróttabuxur og hettupeysu með áletrunina „QUICKSILVER“. Í tilkynningu sem barst frá lögreglu í gær kom fram að ætla megi að maðurinn hafi látist fyrir einhverjum mánuðum síðan.

Enginn farangur fannst á svæðinu

Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á Suðurlandi, segir í samtali við mbl.is að göngufólk hafi gengið fram á líkið en allajafna er lítil umferð um svæðið.

Enginn farangur fannst á svæðinu sem gæti hafa tilheyrt manninum og þá fundust engin skilríki sem gætu gefið vísbendingar um manninn. Líkið var ekki illa farið en ljóst þykir að það hafi verið í dalnum í nokkurn tíma.

Aðspurður segir Sveinn Kristján að einskis sé saknað á svæðinu og engar vísbendingar hafi borist frá almenningi vegna málsins og lögregla hafi ekki mikið í höndunum vegna rannsóknar málsins sem stendur.

Réttarmeinarannsókn gæti tekið nokkurn tíma

Bindur lögregla vonir við að niðurstaða réttarmeinarannsóknar sem stendur yfir varpi ljós á andlát mannsins en rannsóknin gæti þó tekið nokkurn tíma. Mögulega verður hægt að nota tannlæknagögn, fingraför eða önnur sýni til að bera kennsl á manninn og mun lögregla bæði nýta sér innlend og erlend gagnasöfn.  

Frétt mbl.is: Líkfundur í Laxárdal á Nesjum

Tilkynningin um líkið barst á fimmta tímanum í gær og fóru lögreglumenn á Höfn þegar á vettvang. Land­helg­is­gæsl­an lagði til þyrlu til að flytja rann­sókn­ar­lög­reglu­mann frá rann­sókn­ar­deild lög­regl­unn­ar á Suður­landi, lög­reglu­menn úr Kennsla­nefnd rík­is­lög­reglu­stjóra, rann­sókn­ar­lög­reglu­mann frá Tækni­deild lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðis­ins og rétt­ar­lækni á staðinn.

Lög­regl­an á Suður­landi biðlar til allra þeirra sem gætu veitt upp­lýs­ing­ar sem gætu átt við lýs­ingu hér að ofan að hafa samband í síma 842 4250, í gegnum Facebook-síðu embættisins eða í gegnum tölvupóst, sudurland@logreglan.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert