Siggi hakkari tók sér frest

Sigurður Ingi Þórðarson.
Sigurður Ingi Þórðarson. mbl.is/Árni Sæberg

Sigurður Ingi Þórðarson, sem ríkissaksóknari hefur ákært fyrir kynferðisbrot, tók sér frest til að taka afstöðu til ákærunnar við þingfestingu málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness í morgun.

Málinu var því næst frestað fram til föstudagsins 28. ágúst, en þá mun hann láta uppi afstöðu sína.

Sigurður Ingi, sem er betur þekktur undir nafninu Siggi hakkara, er ákærður fyrir kynferðisbrot gegn níu piltum.

Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald í fyrra, en í gæsluvarðhaldsúrskurðinum, sem var kveðinn upp í Hæsta­rétti þann 5. nóv­em­ber síðastliðinn, kom fram að lög­regl­an væri að rannsaka meint brot hans gegn ellefu drengj­um. Munu brot­in gegn drengj­un­um varða þau ákvæði hegn­ing­ar­laga er snúa að nauðgun, sam­ræði við börn und­ir fimmtán ára aldri, tæl­ingu barna til sam­ræðis og fé­greiðslu fyr­ir vændi og vændi barns. 

Tvö þess­ara meintu brota leiddu ekki til ákæru.

Þá var hann á síðasta ári dæmdur í tveggja ára fang­elsi, meðal ann­ars fyr­ir fjár­svik. Áður hef­ur hann einnig verið dæmd­ur fyr­ir að hafa tælt sautján ára dreng til að stunda við hann kyn­mök með blekk­ing­um. 

Þinghald í málinu er lokað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert