Bíða eftir að ESB komi úr sumarfríi

mbl.is/Helgi

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir enn verið að kortleggja hvernig bregðast eigi við viðskiptaþvingunum Rússlands.

Samráðshópur íslenskra stjórnvalda og hagsmunaaðila í sjávarútvegi fundar áfram í vikunni en beðið er eftir því að starfsmenn Evrópusambandsins (ESB) komi úr sumarfríi svo að viðræður íslenskra stjórnvalda og ESB um áhrif viðskiptaþvingananna geti hafist.

Gunnar Bragi segir að í viðræðunum verði farið fram á greiðan aðgang fyrir íslenskar sjávarafurðir inn á Evrópumarkað. Hann býst við því að þessar viðræður hefjist fyrri hluta septembermánaðar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert