Nýr sviðsstjóri starfsmannasviðs HÍ

Anna María Pétursdóttir.
Anna María Pétursdóttir. ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Anna María Pétursdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri starfsmannasviðs Háskóla Íslands og hóf hún störf 10. ágúst síðastliðinn.

Anna María er með tvær meistaragráður, annars vegar í vinnusálfræði og hins vegar í fjármálum. Jafnframt er Anna María með B.Ed.-próf í kennslufræðum og hefur hún aflað sér viðbótarmenntunar í náms- og starfsráðgjöf og verkefnastjórnun, að því er segir í tilkynningu frá HÍ.

Áður en Anna María tók við núverandi stöðu hafði hún starfað m.a. sem framkvæmdastjóri starfsmannasviðs hjá Vífilfelli hf., sem starfsmannastjóri Reykjavíkurborgar og starfsmannastjóri Seðlabanka Íslands. Þá hefur Anna María starfað sem stundakennari á sviði stjórnunar og starfsmannamála bæði hjá Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík og birt greinar á opinberum vettvangi á sviði nýsköpunar og starfsmannamála. Anna María hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja og tekið þátt í samnorrænum rannsóknum á sviði nýsköpunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert