Sóttu slasaðan ungling

Ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar.
Ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út um kl. 14 í dag til að sækja unglingspilt sem slasaðist á göngu milli Álftavatns og Hrafntinnuskers. Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð út.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu, en þar segir að ferðafólk sem statt var við Álftavatn hafi farið af stað með sjúkrabúnað og -börur. Í þeirra hópi var sjúkraflutningamaður.

„Vegna slæmra aðstæðna gat þyrla Landhelgisgæslunnar ekki lent nær slysstað en um þremur kílómetrum frá. Gengu læknir og sigmaður á slysstaðinn til að hlúa að drengnum og undirbúa hann fyrir flutning. Þegar aðstæður breyttust tókst þyrlunni að fljúga nær þannig að hægt var að koma drengnum um borð án þess að bera hann langa leið. Ekki er talið að hann sé alvarlega slasaður. Þyrlan flytur hann nú á sjúkrahús í Reykjavík og björgunarsveitir kanna hvort ferðafélagar hans þurfi aðstoð við að komast til byggða,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert