Lögreglan handtók mann um fjögur leytið í nótt í Mosfellsbæ en hann hafði komið sér fyrir í sorphirðubíl í bænum. Maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, gistir fangageymslu í nótt.
Á öðrum tímanum í nótt hafði lögreglan afskipti af tveimur mönnum í Breiðholti vegna vörslu fíkniefna.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði för eins ökumanns í nótt fyrir ölvunarakstur en sá ók Barónsstíg þegar lögregla hafði afskipti af honum.