Í Malaví tekur allt lengri tíma en á Íslandi

Litla fjölskyldan stækkaði í vor: Lárus með Heru á herðunum …
Litla fjölskyldan stækkaði í vor: Lárus með Heru á herðunum og Eva með Alexander í fanginu. Þau halda öll saman aftur til Malaví í september. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Við vissum að við sæjum eftir því alla ævi ef við nýttum ekki þetta tækifæri til að flytja til Afríku. Við stukkum því út í djúpu laugina,“ segir Eva Harðardóttir sem flutti til Malaví árið 2013 ásamt eiginmanni sínum, Lárusi Jónssyni, og ungri dóttur þeirra, Heru, en Eva réði sig þangað í vinnu til þriggja ára sem menntunarsérfræðingur á vegum UNICEF. En litla fjölskyldan hefur verið heima á Íslandi frá því í vor, því Eva er í fæðingarorlofi, hún eignaðist soninn Alexander í apríl. Þau fara aftur til Malaví í september, enda á Eva eftir að klára heilt ár af starfssamningnum.

„Það var dálítið töff fyrir okkur að flytja til Afríku, en við vorum svo heppin að Huld Ingimarsdóttir starfaði og bjó í Malaví þegar við komum þangað fyrst og hún var okkar bjargvættur. Hún tók á móti okkur og við bjuggum heima hjá henni á meðan við vorum að finna okkur samastað. Við vorum alveg blaut á bak við eyrun og vorum ekki með húsnæði þegar við lentum. Það tók nokkrar vikur að redda því, en í Malaví tekur allt miklu lengri tíma en á Íslandi, þar er svokallaður malavískur tími. Maður lærir smátt og smátt að aðlagast því.“

Hindranir á vegi stúlkna

Þau búa í höfuðborginni Lilongwe og Eva vinnur á skrifstofu með rúmlega hundrað manns allstaðar að úr heiminum.

„Starf okkar á menntamáladeildinni felst í því að móta menntastefnu, greina hvar vantar hjálp og finna út hvað er hægt að gera. Eftirfylgni verkefna sem við setjum af stað er stór hluti af starfi okkar, að fara á staðinn og athuga hvort allt gangi vel og hvort verkefni skili árangri. Ég hef farið heilmikið út í þorpin til að ganga úr skugga um að verkefnin okkar skili kynjajafnrétti, því stúlkur í Malaví lenda miklu frekar í hindrunum á vegi sínum til menntunar. Þær giftast mjög ungar og eignast fljótt börn. Þær eru nýttar sem vinnuafl heima fyrir. Bróðurparturinn af því sem við gerum snýr að menntun stúlkna. Kennarar beita nemendur oft líkamlegum refsingum og ein leið til að bregðast við því er að efla endurmenntun kennara. Í Malaví er kennarastarf illa borgað og lítt virt. Við reynum að gera kerfið meira hvetjandi svo fólk vilji verða kennarar og geti lifað af launum sínum.“

Ólíkur skilningur á núna

Malaví hefur verið undir mikilli harðstjórn lengi, það er stutt síðan þar var einræðisherra og Eva segir að menningin sé lituð af því.

„Það tók mig tíma að átta mig á að í samskiptum við Malava þá þarf að ræða hlutina á ólíkan máta en hér heima. En það lærist að gera ráð fyrir þessu og bregðast við því. Til dæmis þegar maður spjallar við fólk og spyr hvort við eigum að gera eitthvað „núna“, þá eru góðar líkur á að það verði ekki gert alveg strax, en ef maður spyr hvort við eigum að gera eitthvað „núna núna“, þá þýðir það virkilega að hlutirnir eigi að gerast strax. Hera dóttir okkar hefur tileinkað sér þetta og segir stundum ef hún vill að ég komi strax: „Mamma geturðu komið núna núna.“

150 börn og einn kennari

Malaví er eitt fátækasta land í heimi og Eva segir að vissulega hafi það tekið á hana að verða vitni að mikilli örbirgð.

„Í fyrstu ferðinni minni út í þorp fór ég í skóla þar sem voru 150 börn í einum bekk og með þeim var einn kennari. Það var búið að þjappa öllum saman og krakkarnir sátu nánast hvert ofan á öðru, sjálfsagt ekki búin að borða neitt þann daginn. Þetta var átakanlegt. Ég held að það hafi hjálpað mér að takast á við þetta að ég er að vinna að breytingum, mér finnst vinnan mín skipta máli og skila einhverju til samfélagsins í Malaví,“ segir Eva og bætir við að henni finnist magnað að verða vitni að því hverju fólk áorki við slakar aðstæður.

Ekki neyslubrjálæði

„Ég veit það er klisja, en það er staðreynd að fólkið í Malaví er yndislegt, alltaf brosandi og rólegt. Lífið er einfaldara og rólegra í Malaví heldur en hér heima á Íslandi. Þó svo að það sé mikið að gera í vinnunni hjá mér, þá er mikill tími fyrir fjölskylduna eftir vinnu, af því það er ekki endalaust úrval af afþreyingu eða hlutum til að kaupa. Þarna er ekki þetta neyslubrjálæði sem er á Vesturlöndum.“

Evu finnst starfið í Malaví einstaklega skemmtilegt.

„Þetta er frábær reynsla og mikill skóli. Helst vil ég halda áfram að vinna á þessu sviði og aldrei að vita hvað tekur við eftir að starfssamningi í Malaví lýkur. En það togar líka í mig að klára doktorsverkefnið mitt þar sem ég hef verið að rannsaka borgaravitund og mannréttindi í tengslum við menntun,“ segir Eva sem er uppeldis- og menntunarfræðingur með meistaragráðu í stefnumótun og stjórnun menntamála.

Eva tók þátt í neyðarhjálp

UNICEF var upphaflega stofnað eftir seinni heimsstyrjöldina með það markmið að veita neyðaraðstoð til barna í Evrópu.

„Ég fékk að upplifa hversu vel UNICEF er skipulagt þegar neyðarástand skapast, því að núna í janúar og febrúar urðu mikil flóð í Malaví, tíu héruð fóru algerlega á flot og heilu þorpin þurrkuðust út. Það þurfti að bjarga fólki á þurrt land og 120 skólar voru notaðir sem búðir fyrir þá sem var bjargað og höfðu misst heimili sín,“ segir Eva og bætir við að forsetinn í Malaví hafi kallað eftir alþjóðlegri neyðaraðstoð og allt hafi verið sett á hæsta stig neyðarhjálpar á skrifstofunni þar sem hún starfar.

„Öllum starfsmönnum var sagt að leggja frá sér pennann og hætta tafarlaust í þeim verkefnum sem við vorum að sinna, því að við áttum að taka þátt í neyðaraðstoðinni. Skipulagðir höfðu verið hópar og sveitir og allir sendir á vettvang. Það var ótrúlegt að sjá hversu vel þetta virkaði. Þar sem ég var kasólétt á þessum tíma fór ég ekki á vettvang en ég var send til að aðstoða á samhæfingarstöð Sameinuðu þjóðanna, þar sem fyrsta neyðaráætlun var skipulögð. Ég vann þar í fjórar vikur og það var ómetanleg lífsreynsla fyrir mig.“

Eva segir að menntamáladeildin hennar hafi haldið skyndinámskeið fyrir 150 malavíska kennara í því hvernig ætti að halda úti skóla sem voru á sama tíma neyðarstaðir fyrir heimilislausa eftir flóðin. „Við sendum þessa kennara út í þorpin til að vera leiðtogar og kenna öðrum að veita stuðning, því að það er gríðarlega mikilvægt fyrir krakkana að geta verið í sinni rútínu og reglu á öruggu svæði þegar allt er á hvolfi í lífi þeirra, þau hafa misst heimili og jafnvel eru einhverjir ættingjar týndir. Þegar saman kemur mikið af fólki í sárri neyð aukast líkur á kynferðisafbrotum og ofbeldi.“

Eva sýnir börnum í Malaví myndir sem hún tók af …
Eva sýnir börnum í Malaví myndir sem hún tók af þeim.
Hera dóttir Evu og Lárusar kann sérlega vel við sig …
Hera dóttir Evu og Lárusar kann sérlega vel við sig í Malaví og hefur eignast marga vini þar. Hér er hún með nokkrum vinkonum sínum.
Stúlkur í Malaví mæta fleiri hindrunum á menntaveginum en piltar. …
Stúlkur í Malaví mæta fleiri hindrunum á menntaveginum en piltar. Þær giftast ungar og eignast fljótt börn.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert